Vilt þú taka þátt í að tryggja flugöryggi?

Isavia ANS leitar að öflugum rafeindavirkja eða rafvirkja – eða einstaklingi með sambærilega menntun – sem vill taka þátt í að byggja upp, reka og viðhalda tæknibúnaði sem tryggir örugga þjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu.
Í starfinu felst tækifæri til að vinna með fjölbreyttan og krefjandi búnað, bæði innan og utandyra og jafnvel uppi í möstrum með útsýni sem fáir fá að upplifa.
Starfið krefst þess að þú sért tilbúin(n) að bregðast hratt við, ferðast út á land og leysa úr tæknilegum áskorunum sem hafa bein áhrif á öryggi og þjónustu íslenska flugstjórnarsvæðisins.
- Rekstur og viðhald á fjarskiptabúnaði, net- og símkerfum, veðurkerfum, flugleiðsögubúnaði, radartengdum kögunarbúnaði, myndavélakerfum og öðrum sérhæfðum búnaði
- Verkefni inni og úti - allt frá tölvubúnaði til mastra
- Dagvinna með bakvaktarkerfi
- Grunnþekking á net- og fjarskiptakerfum
- Reynsla af rekstri fjarskiptabúnaðar
- Góð tölvukunnátta
- Áhugi á tæknimálum og fljót/ur að tileinka sér nýjungar
- Skipulagshæfni
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í góðri liðsheild
- Hæfni til að vinna í hæð
- Góð kunnátta á íslensku og ensku
- Þekking á Linux - kostur en ekki skilyrði
- Við leitum eftir einstakling sem er vanur/vön fjallaferðum að vetrarlagi - kostur en ekki skilyrði
Umsóknarfrestur frá: 01.09.2025
Umsóknarfrestur til: 14.09.2025
Starfsstöð er á Steinhellu í Hafnarfirði
Afhverju Isavia ANS?
Hjá okkur færðu að:
🌍 Taka þátt í að tryggja öryggi allra þeirra sem ferðast um íslenska flugstjórnarsvæðið
🚁 Upplifa fjölbreytt verkefni á ólíkum stöðum víðs vegar um landið
⚡ Vinna með tæknibúnað og spennandi kerfi sem ekki er að finna annars staðar.
👥 Verða hluti af sterku teymi í góðri starfsaðstöðu þar sem samvinna og jákvæð menning eru í fyrirrúmi.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigmar Torfi Ásgrímsson í gegnum netfangið sigmar.asgrimsson@isavia.is