Hermaflugmenn

Sækja um

Um er að ræða starf í þjálfunardeild Isavia ANS. Starfsmaðurinn verður hluti af öflugu teymi sem hefur umsjón með ný- og síþjálfun um 300 sérfræðinga í flugleiðsöguþjónustu þ.m.t. flugumferðarstjórn.

Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem sjálfstæði og samskiptahæfleikar fá að njóta sín.

Við leitum eftir einstaklingum í tímabundnar stöður frá ágúst 2025 til loka maí 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýra framvindu ATC/ATS hermaæfinga eftir handriti og fyrirmælum
  • Leika hlutverk flugmanna og ATS aðila
  • Setja upp æfingar í flugþjálfa og lagfæra þær
  • Prófa virkni æfinga og hugbúnaðar
  • Sinna þjálfun, kennslu og öðrum verkefnum

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Góð almenn tölvufærni
  • Góð íslensku og ensku kunnátta
  • Reynsla sem tengist flugi og orðtakanotkun er kostur
  • Reynsla af kennslu er kostur

Umsóknarfrestur frá: 18.06.2025

Umsóknarfrestur til: 30.06.2025

Hafa samband: Jón Gunnlaugsson

Sækja um