Aðstoð í mötuneyti

Isavia ANS er með gott mötuneyti á starfsstöð sinni í Reykjavík og við erum að leita eftir kraftmiklum og þjónustulunduðum einstaklingi til að bætast við teymið þar. Við leitum eftir einstaklingi sem tekur þátt í því að skapa góða liðsheild, stuðla að uppbyggjandi menningu og góðum samskiptum.
Starfið getur verið 80-100% staða. Vinnutími er frá 7:00 - 14:00 / 15:00.
Ákjósanlegast væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst, eða fyrir 1. júní.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við matreiðslu í samráði við matreiðslumann
- Framreiðsla á morgunmat
- Framreiðsla á hádegismat, salatbar og súpu í samráði við matreiðslumann
- Aðstoð við innkaup í samráði við matreiðslumann
- Frágangur, uppvask og dagleg þrif í eldhúsi og matsal
- Áfyllingar á kaffivélar, kæla og annað sem þarfnast áfyllingar
- Aðstoð við móttöku og frágang á vörum
- Aðstoð við undirbúning og frágang veitinga á fundum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á fjölbreyttri og hollri matargerð
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Þjónustulund og áhugi á að vinna vel í teymi
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða eldhúsi er kostur
- Hreint sakavottorð
- Gott vald á íslensku og/eða ensku
Isavia ANS er staðsett á Reykjavíkurflugvelli, Nauthólsvegi 66
Umsóknarfrestur frá: 27.03.2025
Umsóknarfrestur til: 06.04.2025
Hafa samband: Elísabeth Inga Ingimarsdóttir