Stjórnaðu fluginu á norðurslóðum – flugumferðarstjóri óskast á Grænlandi

Sækja um

Vð leitum eftir flugumferðarstjóra til starfa í flugturninum í Söndrestrom (BGSF). Flugturninn í BGSF veitir bæði turn- og aðflugsþjónustu fyrir flugvöllinn í Söndrestrom út í 90NM frá flugvellinum og upp í FL195. Flugvöllurinn er einn af millilandaflugvöllum Grænlendinga og hýsir meðal annars vélar danska hersins á Grænlandi auk þess að þjónusta Air Greenland og fleiri notendur.

Isavia ANS hefur sinnt ATC þjónustu fyrir flugvöllinn síðan 2015 og fyrirliggjandi er að þjónustan verði veitt út 2031 hið minnsta.

Reiknað er með að viðkomandi starfsmaður myndi viðhalda réttindum sínum á Íslandi þegar hann væri ekki við störf í Grænlandi og aðal starfsstöð yrði áfram á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita flugumferðarþjónustu fyrir BGSF APP og BGSF TWR.
  • Samskipti við aðliggjandi svæði og aðila á flugvelli.
  • Aðstoða við leit og björgun ef og þörf krefur.
  • Sinna varðstjóraskyldum í fjarveru varðstjóra, s.s. mönnun vakta, uppfærslu upplýsinga o.fl.
  • Ganga bakvaktir samkvæmt vaktaskrá utan opnunartíma flugvallarins.

Hæfniskröfur:

  • Fimm ára reynsla sem flugumferðarstjóri.
  • Gild turn- eða aðflugsréttindi, það er kostur ef viðkomandi hefur haft bæði á einhverjum tíma.
  • Bílpróf.
  • Enskukunnátta, stig 4 eða hærra.
  • Fyrir starfsþjálfun þarf að ná dönskukunnáttu á stigi 4 eða hærra, Isavia ANS getur boðið dönskunámskeið.

Nánari upplýsingar veitir Jón Ingi Jónsson, jon.ingi@isavia.is eða í síma 660-0460. Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar.

Sækja um