Til baka

UAV loftfar USAF við æfingar undan ströndum Íslands

Ómannað loftfar (UAV) bandaríska flughersins (USAF) hefur undanfarið flogið til og frá Keflavíkurflugvelli í tengslum við heræfingu sem fram fór fyrir suðaustan Ísland. Æfingin gekk afar vel og hefur flugi UAV nú verið formlega lokið.

Í morgun tók hópur frá Isavia ANS, Steinunn Arna og Árni Falk þátt í stuttri athöfn hjá Landhelgisgæslunni þar sem USAF færði Isavia ANS sérstaka þakkargjöf: íslenskan fána sem hafði flogið með UAV-vélinni MQ-9 þann 13. maí. Með fánanum fylgdi einnig staðfesting og innrammað þakkarskjal.

Bandaríski flugherinn þakkaði kærlega fyrir samstarfið og þá þjónustu sem hann fékk í tengslum við æfinguna.

Isavia ANS leggur áherslu á öflugt og öruggt samstarf við innlenda og erlenda samstarfsaðila, og er ánægt með að hafa lagt sitt af mörkum til þess að verkefnið tækist vel.