Árið 2024 var stórt hjá Isavia ANS, en þá flugu yfir 200.000 flugvélar í gegnum íslenska flugstjórnarsvæðið. Það er metár hjá flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
Isavia ANS er dótturfélag Isavia og sinnir flugleiðsöguþjónustu í innanlands- og alþjóðaflugi í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Hjá fyrirtækinu starfa um 290 starfsmenn, þar af um 100 flugumferðarstjórar, 20 fluggagnafræðingar og 50 flugfjarskiptamenn við að sinna flugumferð, en stærsti hluti hennar er flugumferð sem flýgur yfir Norður-Atlantshafið á leið sinni milli Evrópu og N-Ameríku og hefur ekki viðkomu á Íslandi.
Sístækkandi hópur viðskiptavina eru flugfélög sem fljúga milli Miðausturlanda og N-Ameríku s.s. Turkish Airlines, Qatar Airways, Emirates og Air India. Eftir að stríð í Úkraínu hófst hefur ferðum fjölgað milli Austurlanda fjær og Evrópu.
Árið 2024 var Icelandair stærsti viðskiptavinur Isavia ANS, þar á eftir koma Turkish Airlines, United Airlines, Play, Lufthansa og Scandinavian Airlines.
„Árið 2024 var viðburðaríkt hjá Isavia ANS , og var flugumferðin í íslenska flugstjórnarsvæðinu sú mesta frá upphafi, bæði talið í fjölda fluga og fjölda floginna kílómetra í svæðinu. Við búumst við enn meiri flugumferð á árinu 2025“ segir Kjartan Briem, framkvæmdarstjóri Isavia ANS.
Íslenska flugstjórnarsvæðið er um fimm og hálf milljón ferkílómetrar að stærð og er eitt stærsta flugstjórnarsvæði heims. Svæðið nær frá Greenwich-lengdarbaugnum í austri og vestur fyrir Grænland, frá Norðurpólnum og suður fyrir Færeyjar, langleiðina til Skotlands.
Að meðaltali fara um 540 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring.