Eldgos er hafið á Reykjanesskaga - Helstu upplýsingar um eldgos á svæðinu má nálgast á vef Veðurstofu Íslands og vef Almannavarna.

Starfsemin

Flugstjórnarmiðstöð

Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur er staðsett í Reykjavík. Þar fer fram stjórnun flugumferðar í aðflugi og í leiðarflugi innanlands og á úthafssvæði sem sameiginlega er kallað íslenska flugstjórnarsvæðið.

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík

Meginhlutverk flugstjórnarmiðstöðvar Reykjavíkur er að veita öllu flugi innan íslenska flugstjórnarsvæðisins örugga, skilvirka og hagkvæma flugumferðar- og flugupplýsingaþjónustu.

Í flugstjórnarmiðstöð starfa rúmlega 100 manns, bæði flugumferðarstjórar og fluggagnafræðingar. Að auki eru starfandi sérfræðingar í stoðdeildum svo sem verkfræðingar, hugbúnaðarsérfræðingar, rafeindavirkjar, rafvirkjar og fleiri. Hlutfall kvenna er um 38% og er meðalaldurinn rétt rúmlega 40 ár.

Margir starfsmenn Flugstjórnarmiðstöðvar, flugumferðarstjórar jafnt sem fluggagnafræðingar, sinna öðrum störfum hjá öðrum deildum samhliða störfum sínum í Flugstjórnarmiðstöð. Þessi störf geta verið margvísleg og hjá mismunandi deildum svo sem hjá Þjálfun, Þróun og rannsóknum, Rannsóknarhópi atvika, AIS eða við kerfishönnum og prófanir. Nokkrir starfsmenn starfa einnig á og á skrifstofu Flugstjórnarmiðstöðvar.

Að meðaltali fara um 400 flugvélar um íslenska flugstjórnarsvæðið á sólarhring.