Veðurþjónusta á flugvöllum
Isavia hefur umsjón með veðurathugunum á flestum flugvöllum landsins. Starfsmenn Isavia eða skilgreindir samstarfsaðilar sjá um veðurþjónustu sem felst
ýmist í gerð og dreifingu reglulegra veðurskeyta eða veðurupplýsingum samkvæmt beiðni. Á nokkrum stöðum er hægt að hringja í sjálfvirkar veðurstöðvar
á flugvöllunum eða í nágrenni þeirra. Í Keflavík, Akureyri og Reykjavík eru útbúin sérstök skeyti sem dreift er í flugvallarútvarpi staðarins, ATIS.
Flugvellir á vegum Isavia eru misjafnlega búnir veðurtækjum og -viðmótum, og því getur verið munur á því hvað birtist undir sérhverjum flugvelli.
Upplýsingar um veður á flugvöllum og í nágrenni þeirra
Fyrir sérhvern flugvöll er birt allt í senn; rauntímaupplýsingar, veðurlýsingar, veðurspár og viðvaranir.
Rauntímaupplýsingar eru bein birting eða lestur frá mælitækjum flugvallanna ásamt veðri og færð frá Vegagerðinni
Veðurlýsingar fyrir flugvellina eru útbúnar á skeytaformi (METAR og SPECI) og einnig lesnar inn í flugvallarútvarp ATIS.
Veðurspár VÍ birtast á skeytaformi (TAF), í spáriti, eða hitariti. Viðvaranir fyrir flug eru á skeytaformi (SIGMET)